þriðjudagur, maí 06, 2008

Grillað í hitanum

-
Já veðrið er búið að vera svakalega gott hérna og næstum því of heitt til að vera úti. Nú er ég loks búinn með lokaritgerðina við Landbúnaðarháskólann og er mjög sáttur við það. Nú verður bara grillað og legið í sólbaði það sem eftir lifir sumars, ja nema maður fái sér vinnu.
-
Hér erum við Einar Karl (æskuvinur Örvars bróður), Siggi Frigg og Tóti að grilla í garðinum okkar, Sindri Tótason er þarna við grillið eitthvað að bauka. Þess má geta að húsið og gámarnir í bakgrunninum tilheyra lóð nágrannans:)

Allt gott er að frétta af börnunum, Ásta Hlín þroskast hratt og verður sífelt meiri grallari, Lára Huld hjólar alla daga úti í garði og er orðin nokkuð klár, Tómas Bergsteinn er búinn að panta sér nýtt hjól og fær það vonandi á fimmtudaginn og Snæbjörn Helgi er alltaf að verða betri og betri að spila á gítarinn sinn.
-

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með að vera búinnnnnn!!

Fagnaðarkveðjur frá Hellum
Þóra, Örvar og Sigurrós

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með áfangann félagi, kveðja úr rokinu og þokunni á Keflavíkurflugvelli.

Eyþór

Nafnlaus sagði...

Til hamingju og takk fyrir að bjóða mér í prófloka grillið, var því miður upptekinn með öðrum og betri vinum.